Vertu vinur okkar a facebook
Lin börn  

Hér eru tillögur að æfingum/leikjum fyrir lin börn

Eftirfarandi æfingar/leikir miða að því að:
  • Styrkja barnið almennt
  • Auka úthald þess
  • Hjálpa því til að fara að hreyfa sig um

Ekki er ætlast til að barnið geri allar æfingarnar í hvert sinn og röð þeirra skiptir ekki máli. Mikilvægt er að nota sér forvitni barnsins til að spinna leik inn í æfingarnar og spreyta sig þannig á að nota hendurnar í leiðinni.

Gott er að virkja önnur börn með til að efla félagsleg tengsl og nota þau einnig sér til eftirbreytni.

Höfundur:
Unnur Guttormsdóttir, sjúkraþjálfari
Miðstöð heilsuverndar barna, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins